lunes, enero 01, 2007

Nýtt ár 2007

Nýtt ár gekk í garð, nokkur kíló af sprengiefni var þeytt út í geiminn við mikla kátínu yngstu kynslóðarinnar sem okkar eldri og heldri.

Góður matur og samvera fjölskyldunnar er óneitanlega það sem flestir óska sér! Í fyrsta sinn í langan tíma vorum við systkynin samankomin hjá foreldrum okkar ásamt börnum og mökum 12 talsins hvorki meir né minna.

Í forrétt var dýrindis aspas súpa
Svínabógur með tilheyrandi
3ja hæða brúnterta með vanilluís / kaffi og koníak fyrir þá sem það vildu.

Á miðnætti gleyptum við 12 vínber að sið spánverja og getum við fagnað heppni á nýju ári þar sem vínberjaátið gekk vonum framar. Engar voru rauðu nærjunrnar svo við verðum bara að treysta á kynþörfina thi hi hi eða vona að hún verði ekki öflug "ri" Já, nýja árið gengur í garð hvort sem við viljum eða ei með þeirri orku sem við knýjum, kjósum og veitum.

Ég gerði það að tillögu að skvetta í mig 12 hvítvínsstaupum en lét það ógert. Ekki góð blanda við CAVA ð sem við skáluðum öll í á miðnætti.

Eitt fanst mér vanta og má þar væntanlega um kenna (að hafa ekki haft útvarpið á) klukknahljómurinn! Kanski heyrðum við ekki í klukknahljómnum þar sem sprengjulætin voru orðin svo mikil þegar nýja árið gekk í garð.

Ég er sennilega orðin fullorðin kona og meir .... þakklát fyrir mitt fólk og sjálfa mig þar sem mér vöknaði um augu þegar áramótin gengu í garð.

Það er gaman að vera til, ég óska öllum gleðilegs árs og friðar á fyrsta degi nýs árs.

Áramótin eru falleg og hlý!

4 Comments:

Blogger S r o s i n said...

Gleðilegt nýtt ár. Gaman að sjá þig í Smáralindinni á Gamlárs... þó í mýflugumynd hafi verið, ótrúlega myndarleg fjölskylda!

03 enero, 2007 02:12  
Blogger Zórdís said...

Segi nú bara sömuleidis zó ad unga herramanninn zann eldri hafi vantad! Ég held ad gledi eigi vid okkur á zessu ári!

03 enero, 2007 03:21  
Anonymous Anónimo said...

Heyrðu, maður er nú bara alveg ruglaður og veit ekkert á hvaða bloggi maður er staddur *andköf*

Gleðilegt nýtt ár, kæra Þórdís, og til hamingju með afmælið um daginn!!

*milljón kossar*

09 enero, 2007 01:21  
Blogger Zórdís said...

Smús og knús! Er það nema von að þú ruglist ég er líka slétt rugluð á þessu. Eitt blogg fyrir hvern klofa!

Gleðilegt ár til þín og túttunnar!

13 enero, 2007 10:54  

Publicar un comentario

<< Home