domingo, noviembre 19, 2006

La Burraca negra vuelve por mi.

Jæja, dyggu vinir.

Sá svarti stendur sperrtur og virðir fyrir sér mærina. Af einhverjum ástæðum (wonder why) fanst manninum mínum þessi mynd ógeðsleg. Kappkostaði af allri náð að fá þessa mynd tekna niður. Fór og keypti risa sjónvarp sem hann setti fyrir framan myndina.

Svo einn daginn þá var myndin farin!

Hvað gerði hann við myndina? Þakka bara mínum náðuga herra að eiga ljósmynd af myndinni!

Kveikti hann í henni eða ......

"Það hefur enginn svona hræfuglamynd upp á vegg hjá sér" ..... Zordis HA!

Ég var svooooo skotin í henni og er skotin! Þýðir ekki að kvarta yfir neinu, lífið er bara svona. Get ég ætlast til að geðbrigði mín henti öllum? Núpps. Ég get bara haldið ótrauð áfram, gælt við breyttan lífsstíl og náð ofurskutttttlunnnni út á ný!

Átak ........ Ég er grönn ..... Ég er grönn ...... Ég er grönn ......

Fyrsti dagurinn minn á morgun. Ætla að taka fyrir og eftir mynd! Ætla að taka nektarmynd og geyma á ísskápnum og þá hætti ég við allt nart, allt sem heitir óhollt, allt sem hefur prómill, kaloríur, kolvetni ...... Skítur, ég verð örugglega Pottþétt bíafra beib á eftir!

Zordis, hvar er hún, sé hana ekki ... Óhhhhh þarna er hún, WOW hvað hún er orðin grönn!

Now we´re talkin!

1 Comments:

Blogger S r o s i n said...

Haha þú verður að pína karlinn til að segja þér hver örlög myndarinnar urðu! Ráðgáta!!

21 noviembre, 2006 20:37  

Publicar un comentario

<< Home