viernes, diciembre 29, 2006

Íslands-ástin svíkur engann

Það fyrsta sem ég gerði við komuna var að koma okkur fyrir í útjaðri Hafnarfjarðar, sem næst álverinu. Okkur liður vel hérna og ekkert vantar til að geta hreiðrað vel um sig.

1. daginn var haldið á vit Smáralindarinnar til að kaupa striga. Jeminn eini, það var bara ekkert til hjá þeim. Minnsti striginn var 60 x 60 sem ég setti hramma mína á og er árangur einnar myndarinnar eins og sjá má.

Akrýl á striga fyrrnefnd stærð og hér er leikið með þá liti sem voru til í búðinni.

Á Þorláksmessu skundaði fjölskyldan á Dalveginn í Kópavogi, við keyptum rauðvín til að færa með jólasteikinni og brugðum okkur í Europris :) Þar fann frúin örlítið minni stærð eða 40 x 50 og er þegar búin að dudda sér við 2 af 3 sem bíður átekta. Jamm, Íslandið hefur ofuráhrif á þessa kerlingu og um að gera að nota tímann vel!

Hafið það gott á milli jólasteikur og nýjársbitans. Megi sá almáttugi færa ykkur frið, il og hamingju á þessum skemmtilegu tímamótum! Já, og kanski eitt og eitt stjörnuljós .......

3 Comments:

Blogger Zórdís said...

Já við vorum t.d. á körfuboltaleik í Hveragerði, gulli hringdi í miðjum leik og G.Hansen ..... Brjálað að gera, við renndum við í Þorlák og hér er víst dansleikur ......

29 diciembre, 2006 22:54  
Blogger S r o s i n said...

Gleðileg jól og vonandi verður nýja árið ykkur gott.

Skelltuð þið ykkur á ball?

30 diciembre, 2006 23:31  
Blogger Zórdís said...

Ó, nei! Ekkert ball á fjölskyldufólkinu. Við keyrðum heim rúmlega 2300 og eigum svo erindi í Þorlák á morgun ( í dag samkv. klukkunni) Brenna og hátíðarmatur ásamt samveru! Gleðilegt ár kæru bloggvinir!

31 diciembre, 2006 01:57  

Publicar un comentario

<< Home