sábado, junio 03, 2006

Menn eru líka englar

Já og já og trala la .....

Varð fyrir truflun áðan, var að rutta til í kjallaranum. Er að flokka gamlar druslur og henda og og og barasta nóg að gera hjá mér núna.

Þoli ekki þessi köst mín því þá langar mig að gera allt, meir að segja baka gulrótarköku!

Þarf að skreppa og versla eitthvað inn, kanski skinkusneið og fuet espetec pylsur fyrir íslandsferðina. Þarf að velja hvaða tangabrók ég tek með mér og og og svo margt!

Það dugar lítið að hafa löngun á öllu heldur þarf ég að setja mig í mitt innra sjálf og velja og hafna. Ákveða af mikilli snilld hvað er sniðugt og hvað ekki.

Ákvað að setja inn þessa gömlu mynd sem hlær hlátri dauðans í kjallaranum okkar. Heilir 75m2 af allskonar dótarýi frá mér ............ Þó ekki bara drasl frá mér, heldur bollastell og könnur, gifsveggjaefni, sólbekkur troðfullur af rafmagnsdrasli og svo tveir bilar!

Já þessi kona sem býr í hjartanu er stundum í heilatwist þó ekki twist og bast!

Jæja best ég droppi niður í kjallaraskoðun og geri reddý fyrir bálið sem verður tendrað. Kveðjubrenna okkur mæðgum til heiðurs ..... Iceland here we come!

1 Comments:

Anonymous Anónimo said...

Á að taka nokkrar með í ferðalagið?
Tíminn er naumur, þú gætir líka valið að vera með móttökubrennu þegar þú kemur...
Annars hefði ég alveg verið til í gulrótarköku...það eru ár og aldir síðan ég smakkaði eina svoleiðis ;)
Knús til þín!!

03 junio, 2006 13:02  

Publicar un comentario

<< Home