sábado, abril 23, 2005

Ef draumurinn rætist...

Er það ekki þegar hann rætist en ekki EF. Ég veit það. Sonur minn sagði í morgun; "mamma núna langar okkur í nýtt barn" .......... "Ha" já já, kanski að við þurfum að semja við hann pabba þinn ;)

Annars er veðrið að spæla egg og annað, rosalega væri Snótin góð í bikiní ... he he he, segi bara svona en hitastig hefur vissulega stigið upp. Það voru 17° snemm -morguns og svo stígur hitinn í 27-28° seinnipartinn.

Bjarni Spánarfari leit við í gær og var rauðvín smakkað og mikið skrafað. Alltaf gaman að fá góða vini tala nú ekki um ef litli alkinn í manni nær að þurrka stýrurnar úr augunum.

Góð vika brátt á enda og spennandi verkefni framundan.

Kær kveðja til ykkar :)

2 Comments:

Blogger S r o s i n said...

Svakalega öfunda ég þig á hitanum... ohhhhhhh... langar svo í svona hita!

Annars mjög gott að sjá þig blogga aftur... búið að vera hálf dauflegt í bloggheimum.

23 abril, 2005 21:28  
Blogger Zórdís said...

já svakalega dautt eitthvad en zad er edlilegt midad vid árstíd eda...

25 abril, 2005 18:52  

Publicar un comentario

<< Home